LAN103
Sigríður Ragnarsdóttir
vorönn 2012
K: SÓ
How many people can live on planet earth?
Fólksfjöldi jarðar hefur tekið heilmikinn vaxtakipp á svo stuttum tíma. Frá 1950 hefur fólki fjölgað meira en tvöfalt, eða frá 2,5 billjónum manna (1950) til næstum 7 billjón manna (2012) og okkur er að fjölga um meira en 2 manneskjur á sekúndu. Þessi fólksfjölgun getur haft miklar afleiðingar með sér, bæði á mannkynið, lífverur, auðlindir og jörðina okkar sem við búum á. Fólki er mest að fjölga í þriðju heims ríkjunum en aukning á notkun auðlinda jarðar er að aukast í iðnaðarríkjunum. Þetta getur haft gríðarleg vandamál í för með sér ef ekkert er gert til að bregðast við sem allra fyrst.
Meira en billjón manns ná ekki að uppfylla þau grunn lífsgæði sem maðurinn þarf til að viðhalda lífi; orka, matur og vatn. Við fólksfjölgun mun ástandið aðeins versna og aðgangurinn að mat og vatni verður enn takmarkaðri. Matvæli þurfa að tvöfaldast sem fyrst til að viðhalda lífi á jörðinni.
Fólkfjölgunin var fyrstu 10.000 árin lítil sem engin, en um 1800 tekur fjölgunin risa stökk upp á við og mannkynið fer úr ca. 2 billjónum til 6,8 billjóna. Þetta eru stórar tölur og ástæðan bak við þessa fjölgun er að mestu leyti framúrskarandi árangur mannkynsins í tækni og lækningum. Sjúkdómum hefur fækkað og ýmis lyf og lækningar hafa verið fundin fyrir dauðvænum sjúkdómum. Talið er að mannfólkinu muni fjölga um meira en 3 billjónir næstu 40 árin en þá mest í þróunarlöndunum. Afhverju? Mögulega er ástæðan sú að aðstæður eru ekki jafn góðar þar og í iðnríkjum, fólk vill eignast fleiri börn til að tryggja sér afkomendur, getnaðarvarnir eru ekki jafn aðgengilegar, menntun er í lágmarki svo hið fullorðna líf hefst mun fyrr og þar með barneignir. Margar geta ástæðurnar verið, en afleiðingin verður ekki svo góð, nema aðstæður í þróunarlöndunum fari að bætast.
Aðstæður þróunarlandanna er mikið undir okkur iðnaðarríkjunum komið. Iðnaðarríkin eru búin að nota allt ræktanlega landið sitt sem þau geta, svo þau kaupa land af þróunarlöndunum til að rækta á, en taka uppskeruna til síns heimalands þar sem varan er unnin eða seld. Má segja að iðnaðarríkin eru að ganga á auðlindir þróunarlandanna fyrir litla sem enga ástæðu. Samanburður á slíkum ríkjum er rosalegur. Meirihluti fólks í iðnaðarríkjum fá sínar þarfir uppfylltar og meira en það, meðan þróunarlöndin reyna að komast upp í grunnþarfir sínar, sem nánast er hægt. Meirihlutinn er vannærður, en meirihluti ríka fólksins er ofnærður.
Thomas Malthus gerði rannsóknir og spár um fólksfjölda jarðar. Hann segir að matarframleiðslan sé ekki í takt við fólksfjölda og við munum endanlega ganga á auðlindir jarðar og ekkert verður eftir. Hin leiðin er að vöxtur á matvælaframleiðslu haldist í hendur við vöxt fólksfjölgunar og matur verði meiri. Sú fyrrnefnda er líklegri, nema einhverjar rosalegar breytingar verða á.
En margt getum við, sem einstaklingar og heild, gert til að hægja fyrir þessu ferli, t.d. með að takmarka barneignir. Þá erum við strax að minnka fólksframleiðslu með t.d. 1-2 börnum á konu. Við getum endurunnið vörur og mat. Það er rosalegt álag sem við setjum á jörðina þegar við nýtum okkur auðlindir hennar, plöntum risa verksmiðjum og tækjum niður, eyðum skógum til að búa til akurlendi eða hendum rusli sem samnast saman í náttúrunni og hefur slæm áhrif. Ekki er það bara jörðin sem verður fyrir hnjaski af rusli og slæmri umgengni heldur verða lífverur líka fyrir skaða og jafnvel heilu stofnarnir. Hver stofn og hver plöntutegund er mikilvæg jörðinni og starfsemi hennar. Við leggjum mikið auka álag á jörðina á því einu að sinna henni ekki eins og bera ger. Við treystum of mikið á auðlindir jarðarinnar og að jörðin muni sjá okkur fyrir hinum ýmsu hlutum, en við gerum okkur ekki grein fyrir að við erum ástæðan fyrir því að hún geti ekki endurnýtt sig eðlilega til eilífðar.
Bláa plánetan okkar. 70% vatn
Strönd í L.A. Svona er umgengni okkar slæm
-Sigríður Ragnarsdóttir

